top of page
IRIS_edited_edited.jpg

BARNASTARF

 

Ætlað börnum á aldrinum 6-12 ára.

 

Kennslan er skipt í vor, sumar og haustönn

Upplýsingar um annir og æfingagjöld

Hægt er að nota frístundastyrkinn uppí æfingagjöldin.

Tímarnir eru kenndir á mánudögum og miðvikudögum frá kl 16:30 til 17:15

 

Markmið námskeiðsins er að kenna börnum sjálfsvörn í gegnum skemmtilega leiki og æfingar.

Sú tækni samanstendur af brazilísku jiu jitsu, kickboxi og standandi glímu.

Meðal þess sem þau læra eru glímutök, högg og spörk.

Einungis er einblínt á tækni þegar högg og spörk eru æfð og þau eru æfð á púða.

 

 

Við viljum skapa eins öruggar aðstæður á æfingum og hægt er.

Mikil áhersla er á öryggi og fræðslu tengda uppgjafartökum og afleiðingum þeirra, sé vitlaust farið að. 

Allar æfingar eru undir öruggri leiðsögn þjálfara.

 

 

Mikil áhersla er lögð á gott félagslíf og samheldni.

Við viljum halda uppi góðum anda á æfingum og skapa gott andrúmsloft svo allir geti lært á sínum hraða. Stefnt verður á að hittast utan æfinga einstöku sinnum til þess að þjappa hópnum enn betur saman, ef aðstæður leyfa.

 

Við hjá Tý höfum fulla trú á að með því að læra sjálfsvörn eykst sjálfsöryggi, agi og styrkur til að takast á við daglegar athafnir en æfingarnar veita góða útrás sem getur skilað sér í betri einbeitingu og líðan. 

Aukið öryggi er ómetanlegt.

B Ú N A Ð U R

Hefðbundin íþróttaföt duga en gott er að eiga glímu galla (Brazilian jiu jitsu). 

( Hægt er að kaupa þá hjá Sportvörum )

 

G R Á Ð A N I R

Í hverjum mánuði geta börnin fengið strípu á beltið sitt ef þau mæta vel og haga sér vel á æfingum.

Í lok hverra annar er belta gráðun, þar sem þau fá nýjan lit á beltið sitt.

 

Y F I R Þ J Á L F A R I

Yfirþjálfari er Imma Helga.

Hún hefur 23 ára reynslu í bardagaíþróttum og 10 ára reynslu af þjálfun.

Hún er margfaldur Íslandsmeistari í hnefaleikum og er ósigruð á Íslandi.

Hún hefur einnig keppt í karate og MMA með góðum árangri.

 

 

 

 

 

 

 

 

Þ J Á L F A R A R

45931256_1379643548837376_7930827360272646144_o_edited.jpg
Ronja_edited_edited.png
Helgi
Halla_Logo.jpg
bottom of page