
VARNARTÖK OG NEYÐARVÖRN
ISR - MATRIX (PM)
Varnartök og neyðarvörn sem byggir á glímu og kickboxi.
Einblínt er á einfalda og skaðaminnkandi tækni til að takast á við átök í starfi eða út á götu.
Fagaðilar hafa oftast nær lítinn tíma til æfinga og því var tæknin sérhönnuð fyrir þá.
Týr býður reglulega upp á grunnámskeið sem sérstaklega eru hugsuð fyrir fagaðila eins og t.d dyravörðum, öryggisvörðum, lögreglumönnum og starfsfólki í heilbrigðisgeiranum, en námskeiðin eru einnig opin öllum þeim sem vilja.
Einnig bjóðum við uppá sérnámskeið fyrir lokaða hópa, stofnanir eða fyrirtæki sem og reglubundna þjálfun.
Að grunnámskeiði loknu getur viðkomandi sótt framhaldstíma í ISR MATRIX
P R U F U T Í M I
Einnig er hægt að mæta í prufutíma.
Hægt að mæta í Sporthúsið þegar sá tími sem þú hefur áhuga á er að byrja og tilkynna afgreiðslu að þú sért að mæta í prufutíma.
Láttu síðan viðkomandi þjálfara vita að þú sért að koma í fyrsta skipti.
B Ú N A Ð U R
Hefðbundin íþróttaföt duga en einnig er gott að hafa með tannhlíf og MMA hanska.
G R U N N N Á M S K E I Ð
Opið öllum yfir 14 ára
Týr býður reglulega upp á grunnnámskeið í ISR
Grunnnámskeið eru haldin á laugardögum frá 12 - 16
( Innifalið er að mæta í framhaldstíma vikuna eftir námskeið )
.
Að grunnnámskeiði loknu geta áskrifendur mætt í ISR MATRIX framhaldstíma samkvæmt stundatöflu.
Grunnnámskeið er hægt að kaupa sér eitt og sér, en einnig er í boði að skrá sig í áskrift og fá þannig aðgang að öllum grunnnámskeiðum sem Týr býður uppá.
Sjá verðskrá.
Vikuaðgangur í Sporthúsið og TÝR MMA fylgir með
Þ J Á L F A R A R